Lestrarmenning
Um leið og meiri áhersla er lögð á læsi og lestrarkennslu í skólum verður til krafa um að setja hvort tveggja í merkingarbært samhengi fyrir nemandann, að veita honum tækifæri til að axla ábyrgð á eigin læsi og öðlast skilning á gildi þess fyrir nám og yndi. Lestrarmenning skólans og alls samfélagsins er þetta merkingarbæra samhengi og verður hún til úr forgangsröðun, áherslum, væntingum og tækifærum sem nemendur fá til að iðka lestur og efla læsi sitt.
Læsi og áhugahvöt
Gott aðgengi að bókum, gildi textans fyrir nemandann og val um lesefni er lykillinn að lestraráhuga.
Yndislestur
Yndislestur er sá lestur sem lesari stundar að eigin frumkvæði og á eigin forsendum.
Skólasafnið
Skólasafnið er hjarta lestrarmenningar hvers skóla. Góður bókakostur og mannauður eru lykilatriði.
Skólinn og heimilin
Það er samstarfsverkefni skóla og heimilis að gera nemendur læsa.
Vitundarvakning
Staða læsis hjá íslenskum nemendum er ekki einkamál heimila eða skóla heldur varðar hún samfélagið allt.