LANIS

LANIS er skimunarlisti sem metur frávik í tali og málþroska þriggja ára barna. Foreldrar og leikskólakennarar fylla út listann. Markmiðið er að bera kennsl á börn sem eiga í erfiðleikum með að tjá sig og læra tungumál svo hægt sé að veita þeim markvissa örvun í tæka tíð.

Handbók

Í handbókinni er að finna mikilvægar upplýsingar um LANIS. Þar er meðal annars fjallað um hagnýtar upplýsingar um útfyllingu listans bæði fyrir eintyngd og fjöltyngd börn, hvernig túlka skuli niðurstöður og í hvaða tilfellum þurfi íhlutun í kjölfar fyrirlagnar. Lestur handbókarinnar eykur líkur á réttmætri útfyllingu og túlkun niðurstöðu og tryggir sameiginlega sýn leikskóla á tilgang skimunarinnar. Ítarlegri handbók um þróun og stöðlun listans er væntanleg.